Vinnuslys á Suðurnesjum

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. mbl.is/Helgi Bjarnason

Vinnuslys varð í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í gær þegar vinnupallur gaf sig og tveir menn féllu á jörðina.

Um var að ræða 3,5 metra fall að því er segir í fréttatilkynningu frá embættinu. Annar þeirra fékk högg á höfuðið og var fluttur með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Hinn slapp án meiðsla.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert