Bæjarstjórn mótmælir lokun fangelsisins harðlega

Bæjarstjórn Akureyrarbæjar krefst þess að yfirvöld ógildi ákvörðunina.
Bæjarstjórn Akureyrarbæjar krefst þess að yfirvöld ógildi ákvörðunina. Mynd/mbl.is

Bæjarstjórn Akureyrar mótmælir harðlega þeirri ákvörðun Fangelsismálastofnunar að loka fangelsinu á Akureyri án nokkurs samráðs við bæjaryfirvöld eða aðrar sveitarstjórnir á svæðinu. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá bæjarstjórn Akureyrarbæjar.

„Bæjarstjórn krefst þess að stjórnvöld grípi tafarlaust í taumana og ógildi þessa ákvörðun,“ segir í yfirlýsingunni. Þar segir einnig að yfirlýst stefna stjórnvalda hafi verið að fjölga atvinnutækifærum á landsbyggðinni og því skýtur það skökku við að fangelsismálayfirvöld taki einhliða ákvörðun án nokkurs fyrirvara að loka fangelsinu á Akureyri og leggi þar með niður fimm störf í bænum.

Bent er á að samlegðaráhrif í starfi lögreglunnar á Norðurlandi eystra og fangelsisins á Akureyri hafi um áratugaskeið verið mikil. Fram til þessa hafi fangaverðið á vegum Fangelsismálastofnunar einnig sinnt föngum sem gista fangageymslur lögreglunnar vegna rannsóknar mála, ölvunar eða af ýmsum öðrum ástæðum.

„Ef ákvörðun um að loka fangelsinu á Akureyri verður ekki afturkölluð, þurfa frá og með næstu mánaðamótum að jafnaði tveir af fimm lögreglumönnum á vakt að sinna fangavörslu flesta daga ársins. Þessi ákvörðun mun því að óbreyttu kalla á stóraukið fjármagn til löggæslu á Norðurlandi eystra en að öðrum kosti skerðist löggæsla á svæðinu svo um munar.“

„Bæjarstjórn Akureyrar telur með öllu ólíðandi að Fangelsismálastofnun geti í trássi við yfirlýsta stefnu stjórnvalda í byggðamálum og án samráðs við sveitarstjórnir á svæðinu tekið slíka ákvörðun um að flytja 5 störf af landsbyggðinni á höfuðborgarsvæðið og þar með sett löggæslu á svo stóru svæði landsins í algjört uppnám,“ segir jafnframt í yfirlýsingunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert