Norræna kemur með 750 farþega

Heilbrigðisstarfsfólk bíður átekta í landgangi Norrænu.
Heilbrigðisstarfsfólk bíður átekta í landgangi Norrænu. mbl.is/Pétur Kristjánsson

Von er á Norrænu til Seyðisfjarðar í fyrramálið með um 750 farþega. Tíu manna sýnatökuteymi starfsfólks HSA auk tæknimanna er komið til Færeyja og skimar farþega á leið ferjunnar til Seyðisfjarðar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá aðgerðastjórn Austurlands.

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2020/07/03/tveir_farthegar_ur_norraenu_smitadir/

Skimun hefst tuttugu og fjórum sjómílum undan strönd landsins og standa vonir til að henni verði lokið áður en til hafnar kemur. Taka þarf sýni úr rétt um fimm hundruð farþegum, nokkru fleiri en í síðustu ferð. Þeir er dvalið hafa í Færeyjum, á Grænlandi eða Íslandi síðustu fjórtán daga eða eru fæddir árið 2005 eða síðar þurfa ekki í sýnatöku.

Aðgerðastjórn á Austurlandi áréttar að farþegar fá allir ítarlegar leiðbeiningar um það hvernig beri að haga sér þegar í land er komið og þá sér í lagi áður en niðurstöður sýnatöku liggja fyrir, að jafnaði innan við sólarhring eftir komu.

 

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert