Umferðartafir á Sæbraut

Facebook-síða lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu

Stefnt er að því að malbika Sæbraut frá Dalbraut að Langholtsvegi til suðurs í dag, miðvikudag. Þrengt verður um eina akrein. Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 09:00 til kl. 15:00.

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum að því er segir í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert