Una dóttir heilbrigðisráðherra með krabbamein

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra greindi frá veikindum dóttur sinnar í dag.
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra greindi frá veikindum dóttur sinnar í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Una Torfadóttir, tónlistarkona og dóttir Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra, hefur greinst með krabbamein. 

Svandís greinir frá þessu í færslu á facebooksíðu sinni. 

„Nýlega greindist Una dóttir mín með heilaæxli sem reyndist vera krabbamein. Nú tekur við löng og ströng krabbameinsmeðferð. Mitt verkefni verður að styðja hana í því ferli ásamt fjölskyldu og vinum. Þetta er stærsta verkefni lífs míns,“ skrifar Svandís. 

Svandís hyggst ekki stíga til hliðar, en hún hefur verið fjarverandi vegna þessa síðustu daga. 

„Ég ætla, með hjálp samstarfsfólks og fjarfunda, að sinna áfram störfum heilbrigðisráðherra og mun skipuleggja mína vinnu á næstunni í samræmi við breyttar aðstæður.“

Kæru vinir, nýlega greindist Una dóttir mín með heilaæxli sem reyndist vera krabbamein. Nú tekur við löng og ströng...

Posted by Svandís Svavarsdóttir on Föstudagur, 10. júlí 2020
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert