Íbúar 14 nýrra ríkja mega ferðast hingað

Öll sem koma hingað til lands eru prófuð fyrir veirunni.
Öll sem koma hingað til lands eru prófuð fyrir veirunni. mbl.is/Íris Jóhannsdóttir

Íbúar og ríkisborgarar Alsír, Ástralíu, Taílands, Suður-Kóreu og tíu annarra ríkja utan Evrópu fá að koma til landsins frá og með 15. júlí næstkomandi. Dómsmálaráðherra ákvað þetta og var ákvörðunin tilkynnt á vef ráðuneytisins í dag. 

Þá hefur dómsmálaráðherra ákveðið að framlengja ferðatakmarkanir ESB og Schengen frá og með 15. júlí. Afnám takmarkana gagnvart íbúum ríkjanna fjórtán eru í samræmi við ákvörðun aðildarríkja Evrópusambandsins þar að lútandi.

Í nýrri reglugerð ráðherra kemur einnig fram að bannið eigi ekki við um íbúa og ríkisborgara Andorra, Mónakó, San Marínó og Vatíkansins.

Ferðatakmarkanirnar eiga ekki við um ríkisborgara eða þá sem hafa gilt dvalarleyfi í ríkjum EES og EFTA og aðstandendur þeirra. Þá eiga þær ekki við um þá sem hafa sannanlega búsetu í einu af þeim fjórtán ríkjum sem um ræðir og eru að koma til landsins þaðan“, segir á vef ráðuneytisins. 

Ríkin fjórtán eru:

Alsír
Ástralía
Kanada
Georgía
Japan
Marokkó
Nýja-Sjáland
Rúanda
Serbía
Suður-Kórea
Svartfjallaland
Túnis
Taíland
Úrúgvæ

Listinn verður endurskoðaður reglulega en engar aðrar breytingar verða á undanþágum frá takmörkunum vegna brýnna erindagjörða.

Áfram verður t.a.m. námsmönnum frá ríkjum utan Schengen sem hyggjast stunda nám og sérfræðingum í vinnutengdum erindum heimilt að koma til landsins.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert