Sólveig Anna krefst hundraða milljóna frá ríkinu

Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar hefur gert kröfu á stjórnvöld upp á „hundruð milljóna“ fyrir hönd félagsmanna sinna sem hafa leitað til Eflingar vegna aðgerðaleysis stjórnvalda vegna ógreiddra launa, launaþjófnaðar, stuldi á desember- og orlofsuppbót og „annarrar glæpahegðunar atvinnurekenda“.

RÚV greindi fyrst frá en Sólveig birti bréf til stjórnvalda á Facebook-síðu sinni í kvöld þar sem hún sagðist áskilja sér rétt á að knýja á um að stjórnvöld stæðu við gefin loforð um að bæta aðstæður vinnandi fólks ef ríkisstjórnin gerir ekkert í málunum. 

Bréfið er stílað á fimm ráðuneyti; forsætis-, atvinnuvega- og nýsköpunar-, dómsmála-, félagsmála-, og fjármála- og efnahagsráðuneytið. 

Í bréfinu reifar Sólveig forsögu málsins og segir að á síðasta ári hafi Efling gert hátt í 700 kröfur fyrir félagsfólk sitt, samtals upp á ríflega 345 milljónir króna. Er meðalupphæð sem Efling sendir út 492.000 krónur og bendir Sólveig á að það sé „miklu hærri upphæð en láglaunamanneskja fær á mánuði fyrir 100% vinnu.“ Þá hafa þúsundir leitað til Eflingar vegna ofangreindra brota.

Sólveig bendir á að ríkisstjórnin hafi lofað því að auka heimildir til refsinga ef atvinnurekandi brýtur gegn lágmarkskjörum launamanna. Ríkisstjórnin hefur, að sögn Sólveigar, ekki staðið við stóru orðin.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert