Sló lögreglukonu í andlitið

Lögreglukona var slegin í andlitið fyrr í kvöld.
Lögreglukona var slegin í andlitið fyrr í kvöld. mbl.is/Eggert

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út í kvöld vegna óvelkomins aðila í heimahúsi í austurhluta Reykjavíkurborgar. Þegar lögregla var að vísa aðilanum út úr húsinu sló hann lögreglukonu í andlitið. Hann var vistaður í fangaklefa í kjölfarið.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu en ekki kom fram hvort lögreglukonan slasaðist.

Ökumaður var tekinn fyrir of hraðan akstur á Reykjanesbraut fyrr í kvöld fyrir að aka bifreið sinni á 119 km/klst þar sem hámarkshraði er 50 km/klst.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert