Stærsti loftkastali í heimi í Öskjuhlíð

Skrímslið er 1.720 fm að stærð og vegur sex tonn. …
Skrímslið er 1.720 fm að stærð og vegur sex tonn. Með því að nota 20 blásara knúna 50 þúsund vöttum tekur aðeins fimm mínútur að blása það upp. mbl.is/Árni Sæberg

Skrímslið, nýr sex tonna loftkastali og 1.720 fm að stærð, verður opnað um næstu helgi og hefur verið blásið upp í Öskjuhlíð.

Loftkastalinn er sá stærsti í heimi eftir því sem Gunnar Gunnarsson, forstjóri Perlunnar, kemst næst, en á síðustu árum hefur eignarhaldsfélagið Perla norðursins staðið að mikilli uppbyggingu á menningartengdri afþreyingu í Perlunni og sett upp fjölda náttúrusýninga sem yfir 300 þúsund gestir hafa sótt. Fjárfesting félagsins er á þriðja milljarð króna að sögn Gunnars.

Nú hyggst félagið gæða Öskjuhlíðina lífi en í loftkastalanum er stærðarinnar hindrunarbraut sem hefur margar skírskotanir til Íslands, að því er fram kemur í ViðskiptaMogganum í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert