Húsvagn fauk út af hringveginum

Ekki er vitað hvort að einhver slasaðist er húsvagninn fauk …
Ekki er vitað hvort að einhver slasaðist er húsvagninn fauk af veginum. Ljósmynd/Aðsend

Húsvagn fauk út af hringveginum við Fjallsárlón, undir Vatnajökli fyrr í dag. Ekki er vitað hvort einhver slasaðist. Vegfarendur segja svæðið erfitt yfirferðar vegna hífandi roks og rigningar.

Í samtali við mbl.is segir starfsmaður Vegagerðarinnar að töluvert sandfok sé á Suðausturlandi og hefur Vegagerðin gefið út viðvörun vegna þess.

„Það var mjög stíf suðvestan átt fyrri part dag og mjög leiðinleg fyrir bíla með hjólhýsi. Það er einhver vindstrengur þarna ennþá frá öræfunum og austur úr en þetta er á niðurleið,“ segir Haraldur Eiríksson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, í samtali við mbl.is.

Mikið rok er á svæðinu með tilheyrandi sandfoki.
Mikið rok er á svæðinu með tilheyrandi sandfoki. Kort/Vegagerðin
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert