ASÍ: lögskýringar Láru „fjarstæðukenndar“

Icelandair sagði öllum flugfreyjum sínum upp í gær.
Icelandair sagði öllum flugfreyjum sínum upp í gær. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Alþýðusamband Íslands segir lögskýringar Láru V. Júlíusdóttur, lögmanns og sér­fræðing­s í vinnu­rétti,  um samnings- og verkfallsrétt launafólks í samhengi við verkfall og uppsagnir flugfreyja, bæði rangar og fjarstæðukenndar. Kjarasamningur á milli flugfreyja og Icelandair gildi þar til hann hafi verið endurnýjaður og á meðan svo sé gildi ekki friðarskylda á milli aðila. 

„ASÍ hafnar þeim málflutningi með öllu og ítrekar stuðning sinn við Flugfreyjufélag Íslands sem nú stendur í erfiðri kjaradeilu þar sem ekki er deilt um launahækkanir heldur um hve mikið kjör þessarar stóru kvennastéttar skuli rýrð“, segir í yfirlýsingu frá ASÍ.

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2020/07/18/telur_akvordun_icelandair_fordaemalausa/

„Samkvæmt [lögskýringum Láru] er gildandi kjarasamningur fallinn úr gildi og réttarsambandi aðila lokið felli annar hvort aðila tillögur um breytingar. Því til viðbótar er látið að því liggja að þar sem öllum flugfreyjum hafi verið sagt upp og vinnuframlags ekki krafist sé ekki hægt að koma á vinnustöðvun. Sú framganga atvinnurekenda er einfaldlega bönnuð með beinum ákvæðum 4.gr. laga nr. 80/1938 og hefur ekki þau áhrif að við það geti aðrir gengið í störf Flugfreyja og þannig ónýtt löglega boðaða vinnustöðvun.“

Fordæmalaus „árás á kvennastétt“

Í yfirlýsingunni segir að Lára hafi haldið því fram að neyðarréttur sem byggður sé á því að fyrirtæki geti ekki greitt umsamin laun samkvæmt gildandi kjarasamningi án breytinga feli það í sér að þar með sé samningurinn fallinn úr gildi með einhliða yfirlýsingu atvinnurekandans. 

Fyrir það fyrsta er Icelandair á opinberu framfæri og á enn fyrir skuldum svo neyðarréttur er ekki til staðar. Í öðru lagi hefur atvinnurekandi fjölmörg úrræði í þessari stöðu m.a. verkbannsheimildir á grundvelli laga 80/1938 og auk greiðslustöðvunar og nauðasamninga svo nokkur dæmi séu tekin. Verkann Icelandair geta síðan aðrir atvinnurekendur stutt með samúðaraðgerðum.

Þá telur ASÍ að lögskýringar Láru myndu fella úr gildi allar leikreglur laga nr. 80/1938 um gerð og endurnýjun kjarasamninga „og hirða stjórnarskrárvarinn verkfallsrétt af íslensku launafólki.“

„[Lögskýringar Láru] eru einnig furðulegt innlegg í umræðu um fordæmalausa árás á stóra kvennastétt sem þegar hefur tekið á sig lækkun launa og verri kjör, langt umfram þær karlastéttir sem þegar höfðu lokið kjarasamningum um launahækkanir við Icelandair.

mbl.is

Bloggað um fréttina

  • Engin mynd til af bloggara Freysteinn Guðmundur Jónsson: ASÍ
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert