Ökumaður fólksbifreiðarinnar sem fór út af Norðausturvegi sunnan Kópaskers í gærkvöldi var látinn þegar að var komið. Hann var einn á ferð í bíl sínum.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Norðurlandi eystra. Þar segir að hinn látni hafi verið um fertugt, erlendur að uppruna en búsettur og starfandi á Íslandi.