Segir FME þurfa öflugri heimildir til inngripa

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri mbl.is/Arnþór Birkisson

Tryggja þarf sjálfstæði stjórnarmanna lífeyrissjóða betur og mun Seðlabankinn kalla eftir lagabreytingum þess efnis. Þá þurfi fjármálaeftirlit Seðlabankans (FME) auknar heimildir til inngripa til að fylgja þeim lögum. Þetta er meðal þess sem Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir við Fréttablaðið í dag.

Er tilefnið tilmæli stjórnar VR í yfirlýsingu vegna kjarabaráttu flugfreyja og Icelandair. Þar beindi stjórnin því til stjórnarmanna lífeyrissjóðs LIVE að sniðganga eða greiða atkvæði gegn þátttöku í væntanlegu hlutafjárútboði Icelandair. Hafði Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, einnig vísað til þess að hægt væri að skipta stjórnarmönnum út sem ekki færu að þessum tilmælum. Eftir að Icelandair og Flugfreyjufélag Íslands sömdu voru tilmælin dregin til baka.

Lífeyriskerfið setið eftir

Í frétt Fréttablaðsins er haft eftir Ásgeiri að uppákomur sem þessar séu ekki nýjar. Stjórnmálamenn, atvinnurekendur og stéttarfélög hafi öll reynt að nýta lífeyrissjóðina og passa þurfi upp á að stjórnir þeirra séu sjálfstæðar og ákvarðanir séu teknar með hagsmuni sjóðsfélaga í huga. Segir Ásgeir jafnframt að eftir hrunið hafi verið tekið hart á skuggastjórnun innan bankakerfisins. Lífeyriskerfið hafi hins vegar setið eftir.

SA kvartaði formlega yfir afskiptum VR

Í kjölfar ummæla Ragnar sagði Unnur Gunnarsdóttir, varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits, að fylgst væri með framgöngu verkalýðsforystunnur vegna aðkomu LIVE að málefnum Icelandair. Kölluðu bæði Hall­dór Benja­mín Þor­bergs­son, fram­kvæmda­stjóri Sam­taka at­vinnu­lífs­ins, og Bogi Nils Boga­son, for­stjóri Icelanda­ir, jafnframt eft­ir því að Fjár­mála­eft­ir­litið tæki til skoðunar orð Ragn­ars Þórs. Kvörtuðu Samtök atvinnulífsins svo formlega yfir afskiptum VR. 

Félögin fari harkalega fram þegar samningsréttinum sé ógnað

Þegar VR dró tilmæli sín til stjórnarmanna LIVE til baka sagði Ragnar að skrif hans og ummæli hefðu verið í nafni stöðu félagsmanna VR, þó álykta hafi mátt að skrifin tengdust baráttu annarra stétta. Þá sagði hann að öll verkalýðshreyfingin og sérstaklega félög innan ASÍ hafi farið mjög harkalega fram, sameinuð, þegar samningsréttinum hafi verið ógnað. 

Höfðu einhverjir starfsmenn VR hjá Icelandair komið fram í fjölmiðlum og lýst óánægju sinni með aðgerðir VR í málefnum félagsins. Sagði Ragnar þá að vilji VR væri að bjarga félaginu með öllum ráðum. Hann hefði samt miklar efasemdir um að núverandi stjórn félagsins gæti það. Sagði hann að tilmælin um sniðgöngu útboðsins væru dregin til baka „ekki vegna þess að það samd­ist við flug­freyj­ur og ekki vegna þess að samn­ings­rétti og framtíð stétt­ar­fé­laga var bjargað fyr­ir horn held­ur vegna þess að við erum í vinnu fyr­ir ykk­ur en ekki öf­ugt.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert