Smit á Rey Cup – á þriðja tug í sóttkví

Fjöldi knattspyrnuiðkenda taka þátt í Rey Cup á ári hverju. …
Fjöldi knattspyrnuiðkenda taka þátt í Rey Cup á ári hverju. Myndin er frá fyrra móti. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Full­orðinn ein­stak­ling­ur sem hef­ur verið viðstadd­ur knatt­spyrnu­mótið Rey Cup hef­ur greinst með kór­ónu­veiruna. „Sá hafði verið á íþróttamótinu Rey Cup í Reykjavík þegar smitið uppgötvaðist,“ segir í tilkynningu frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.

Í tilkynningunni  segir að smitrakning hafi hafist um leið og málið kom upp og stendur enn. Einn er kominn í einangrun og á þriðja tug hefur verið beðinn um að fara í sóttkví í tvær vikur. Ekki er útilokað að þeim sem þurfa að fara í sóttkví fjölgi eftir því sem smitrakning fer fram. 

Mótið hófst á miðvikudaginn og því á að ljúka á morgun, sunnudaginn 27. júlí.

Ráðstafanir hafa verið gerðar á Rey Cup og mótshaldarar hafa unnið með smitrakningarteymi almannavarna og sóttvarnayfirvöldum. Einstaklingurinn sem um ræðir og hópurinn sem hann var í samneyti við mun ekki taka frekari þátt í mótinu. 

Samkvæmt Jóhanni K. Jóhannssyni, upplýsingafulltrúa almannavarna, var einstaklingurinn á Rey Cup í tengslum við íþróttafélag í Reykjavík. 

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis biðja fólk sem hefur sótt umrætt íþróttamót að gæta varúðar og huga að einstaklingsbundnum smitvörnum. Leiki minnsti vafi á hvort einkenni Covid-19 veirunnar séu til staðar er sá hinn sami beðinn um að fara í sýnatöku á næstu heilsugæslustöð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert