Kári krefst hertra aðgerða

Kári Stefánsson í Turninum í Kópavogi í mars. Þar voru …
Kári Stefánsson í Turninum í Kópavogi í mars. Þar voru tugir þúsunda Íslendinga skimaðir fyrir kórónuveirunni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segist reikna með að samfélagslegar ráðstafanir vegna kórónuveirunnar verði hertar vegna hópsmits sem komið er upp.

„Ef heilbrigðisyfirvöld ákveða að breyta engu þrátt fyrir þetta, þá verðum við ekki með í leiknum. Þetta er ekki ástand sem býður upp á að standa hjá og horfa á,“ segir Kári í samtali við mbl.is.

Heilbrigðisráðherra fundaði í kvöld með sóttvarnalækni og landlækni og þar var ákveðið að bíða fram á morgun með frekari ákvarðanir, enda ættu gögn eftir að berast í kvöld sem gæfu betri mynd af ástandinu. Í fyrramálið er fundað.

Íslensk erfðagreining hefur skimun fyrir kórónuveirunni í slembiúrtaki Íslendinga um hádegisbil á morgun, eftir að hafa dregið sig út úr aðgerðum vegna veirunnar með eftirminnilegum hætti fyrr í mánuðinum. Markmiðið er að ná utan um smit í íslensku samfélagi.

„Við ætlum ekki að halda áfram að skima í rútínu á landamærum Íslands, enda ekki okkar hlutverk. En þegar hætta steðjar að eins og núna, er mikilvægt að hreyfa sig hratt. Ég er búinn að vera kvíðinn í nokkra daga út af þessu og ein af aðferðunum til að takast á við þann kvíða er að hoppa inn í þetta og taka þátt í verkefninu,“ segir Kári.

Angist af ástæðu

Kári er kvíðinn vegna þessa, segir hann: „Í hópsýkingunni eru þrír hópar, getum við sagt. Í fyrsta lagi er það hópsmit á Skaganum hjá farandverkamönnum, síðan er það faðirinn á Rey Cup og loks er það frjálsíþróttamaðurinn ungi. Þeir eru allir smitaðir af veiru með sama mynstri stökkbreytinga en samt vita þeir ekkert hver af öðrum. 

Það er ekkert vitað hvernig þeir snertu hver annan, sem fær mann til þess að geta sér þess til að það séu aðilar á milli þeirra sem hafi smitast. Það hlýtur að vera. Hversu margir þeir eru vitum við ekki en sá möguleiki er fyrir hendi að þeir séu með mikið af veirunni og séu mjög smitandi, eins og tveir þeirra smituðu á Skaganum. Þeir voru með „ct-gildi“ upp á 13 og 14, sem er það lægsta sem við höfum séð og sá næsti fyrir ofan var með 18.“

Því lægra sem CT-gildi sjúklingsins er, þeim mun meira smitandi er hann. 

Börnin þurfa að fara í skólann 

Það er einsýnt að mati Kára að herða eigi ráðstafanir á Íslandi, bæði gagnvart ferðamönnum og innanlands. „Þórólfur hefur alltaf talað um þann möguleika að það þurfi að herða þetta aftur. Þetta er eðli farsóttar, þú herðir aðgerðir, slakar til, og herðir aftur. Nú er þetta að blossa upp í löndunum í kringum okkur þaðan sem fólk er að koma í heimsókn til okkar. Það ætti ekki að koma neinum á óvart að takmörkunum sé breytt,“ segir hann.

Það skipti máli til dæmis þegar litið er til þess að börn þurfa að komast í skólann eftir þrjár vikur og Kári segir þá misskilning að það komi niður á ferðaþjónustunni. „Þetta er spurning um að herða þetta um skamman tíma og geta þá aflétt því aftur. Hinn valmöguleikinn er að bíða í eina eða tvær vikur og þurfa þá að loka öllu til eilífðarnóns,“ sagði Kári. „Hertar aðgerðir þjóna hagsmunum allra, þar á meðal ferðaþjónustunnar.“

Getur brugðið til beggja vona

Kári veit ekki enn hve umfangsmikil slembiúrtaksskimun ÍE verður. „Ef heppnin er með okkur lítur þetta bara ógnvekjandi út og við getum slökkt á þessu í einum grænum hvelli. Ég vona svo sannarlega að svo sé. En eins og stendur finnst mér jafnmiklar líkur á að þetta hafi farið víða og að þetta sé enn einangrað á þessum stöðum,“ segir Kári. 

Skimað í Kópavogi. Tiltækt starfsfólk ætti að stökkva til, telur …
Skimað í Kópavogi. Tiltækt starfsfólk ætti að stökkva til, telur Kári. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Skimunin hefst á morgun ef undirbúningur gengur rétt fyrir sig og Íslensk erfðagreining heldur sömuleiðis áfram að raðgreina veiruna, sem er nauðsynlegt til að átta sig á útbreiðslunni. Starfsmenn verða kallaðir inn, sumir úr langþráðu sumarfríi, en Kári væntir ekki annars en að tiltækt fólk standi vaktina. Eitthvað verður skimað í Turninum í Kópavogi, eitthvað á innkeyrslustöðvum sem settar verða upp. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert