Uppruni tveggja smita óþekktur

Ekki er ljóst hvernig tveir þeirra sem greindust smitaðir í …
Ekki er ljóst hvernig tveir þeirra sem greindust smitaðir í gær smituðust. Landspítali/Þorkell Þorkelsson

Uppruni tveggja innanlandssmita af þeim fjórum sem greindust í gær er óljós. Hin smitin tengjast annars vegar hópsmitinu á Akranesi og hins vegar erlendum ferðamanni.

Þetta segir Jóhann K. Jóhannsson, samskiptastjóri almannavarna, í samtali við mbl.is.

Þá staðfesti hann að fjarfundi samráðshóps væri lokið og að niðurstaðan væri sú að nú muni sóttvarnalæknir væntanlega taka saman tillögur sem hann sendir heilbrigðisráðherra sem tekur svo ákvörðun um hvort fallist verði á þær.

„En hvort og þá til hvaða aðgerða verður gripið er í höndum sóttvarnalæknis,“ segir Jóhann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert