Ferðum aflýst og grímur gerðar að skyldu

Ferðafélag Íslands sér um rekstur fjölmargra skála á hálendinu og …
Ferðafélag Íslands sér um rekstur fjölmargra skála á hálendinu og víðar, meðal annars þennan skála í Nýjadal.

Ferðafélag Íslands hefur ákveðið að aflýsa öllum ferðum á vegum félagsins. Þá hefur félagið ákveðið að gestum í skálum verði gert að bera andlitsgrímur, auk þess að gistipláss í skálum hafa verið takmörkuð. 

Páll Guðmundsson, framkvæmdastjóri Ferðafélags Íslands, segir í samtali við mbl.is að ferðum sem fara áttu fram á næstunni, til 10. ágúst, hafi verið aflýst, en fram kom á blaðamanna­fundi stjórn­valda í dag að hert­ar aðgerðir inn­an­lands og á landa­mær­um vegna út­breiðslu kór­ónu­veirufar­ald­urs­ins taki gildi á há­degi á morg­un. Tak­mörk­un á fjölda sem kem­ur sam­an miðast við 100 ein­stak­linga og tveggja metra regl­an verður skyld. Ná þess­ar nýju ráðstaf­an­ir til 13. ág­úst.

„Þeim ferðum er öllum aflýst og þátttakendum er endurgreitt 100%. Við aflýsum sem sagt ferðum til 10. ágúst í von um að hægt verði að ná tökum á útbreiðslunni og reglurnar verði endurskoðaðar, en þetta er tíminn sem við gefum okkur og endurmetum stöðuna í lok næstu viku og endurmetum stöðuna þá,“ segir Páll. 

Þá segir Páll að gistirými í skálum hafi verið takmörkuð verulega. 

„Við erum að takmarka allt gistipláss um 50% eða meira og því er komið við strax með þessum stutta fyrirvara. Það hafa verið góðar sóttvarnir í skálum og við erum að leggja enn meiri áherslu á það og svo bæta við notkun á grímum sem við erum að koma upp í alla skála á morgun. Við útvegum sem sagt grímurnar, en förum kannski fram á það sem nemur kostnaðarverði,“ segir Páll. 

Páll segir að FÍ hafi fundað síðustu daga og verið undir það búið að taka ákvörðun á borð við þessa. 

„Við vorum búin að búa okkur undir þessa ákvörðun og vorum tilbúin að taka hana strax í kjölfar tilmæla heilbrigðisráðherra,“ segir Páll. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert