Taka ákvörðun um maraþonið á þriðjudag

Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka á að fara fram 22. ágúst.
Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka á að fara fram 22. ágúst. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Íþróttabandalag Reykjavíkur mun á þriðjudag taka ákvörðun um hvort og með hvaða hætti halda skuli Reykjavíkurmaraþonið, sem samkvæmt óbreyttu skipulagi á að fara fram laugardaginn 22. ágúst.

Hrefna Hlín Sveinbjörnsdóttir, verkefnastjóri hjá ÍBR, segir í samtali við mbl.is að um þessar mundir standi yfir fundir með fulltrúum almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra og öðrum þeim aðilum sem að skipulagningu hlaupsins koma.

Bandalagið sjálft muni svo eiga fund á þriðjudagsmorgun, þar sem tekin verði ákvörðun um framhaldið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert