Loka Guðlaug og líkamsræktarsal

Guðlaug er á Akranesi.
Guðlaug er á Akranesi. Ljósmynd/Akraneskaupstaður

Vegna breyttra aðstæðna af völdum Covid 19 hefur verið tekin ákvörðun um að loka Guðlaug frá og með deginum í  dag 31. júlí og fram yfir helgi. Þetta kemur fram á vef Akraneskaupstaðar. 

Verður ákvörðunin endurskoðuð eftir helgi í samræmi við nýjustu upplýsingar þá um fjölgun smita.

Sömuleiðis hefur verið ákveðið að loka líkamsræktarsal á Jaðarsbökkum í dag 31. júlí til a.m.k. 10. ágúst, þar sem ekki verður unnt að fylgja tilmælum sóttvarnalæknis um þrif á tækjum og aðstöðu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert