Þrír hópar boðaðir í skimun hjá ÍE

Íslensk erfðagreining.
Íslensk erfðagreining. mbl.is/Júlíus

Íslensk erfðagreining vinnur nú aftur að skimun einstaklinga fyrir COVID-19 í samvinnu við sóttvarnalækni. Tilgangurinn er að kanna útbreiðslu veirunnar hér á landi svo hægt sé að meta þörf fyrir frekari aðgerðir. Mögulega verður einnig hægt að rekja uppruna smitanna sem nú eru í gangi.

Þetta kemur fram á vef landlæknis en þar segir að þrír hópar fái boð í skimun hjá Íslenskri erfðagreiningu:

Einstaklingar í sóttkví eftir að hafa verið í samskiptum við einstaklinga sem greindust með veiruna nú nýlega. Fólk á landsbyggðinni í þessari stöðu fær leiðbeiningar um hvar og hvenær það geti farið í sýnatöku hjá heilsugæslunni.

Fólk sem tengist einstaklingum í einangrun á einhvern hátt, sem ákveðið var að þyrftu þó ekki að fara í sóttkví, til dæmis ef talsverður tími var frá samskiptum við þann smitaða.

Handahófskennt úrtak á þeim svæðum þar sem smit hafa komið upp undanfarið en sóttvarnalæknir hvetur alla sem fá boð til að taka þátt.

Neikvætt sýni afléttir ekki sóttkví

Fólk fær boð um þátttöku með textaskilaboðum. Þar koma fram upplýsingar um vefslóð sem notuð er til að skrá sig í sýnatöku. Við skráningu fær þátttakandi ítarlegar upplýsingar um hvar sýnatakan fer fram.

Skimun fer fram í Turninum í Kópavogi. Bent er á að einstaklingar í sóttkví mega ekki fara inn í Turninn og eru sýni úr þeim tekin fyrir utan, líkt og hjá heilsugæslunni hjá þeim sem sýna einkenni veirunnar.

Þá er bent á að neikvætt sýni hjá einstaklingi í sóttkví vegna tengsla við þekkt smit verði ekki til þess að aflétta sóttkví.

Eitt jákvætt sýni í gær

Í tölum dagsins á covid.is kemur fram að eitt af ellefu innanlandssmitum sem staðfest voru í gær hafi fundist í úrtaki hjá Íslenskri erfiðagreiningu. 

Alls voru tekin 1.350 sýni hjá ÍE í gær.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert