Þríeykið mætir á upplýsingafund

Frá fundi almannavarna í gær.
Frá fundi almannavarna í gær. Ljósmynd/Lögreglan

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til upplýsingafundar fyrir fjölmiðla klukkan 14 í dag í Katrínartúni 2, 2. hæð.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og Alma D. Möller landlæknir fara yfir stöðu mála, varðandi framgang COVID-19-faraldursins hér á landi, ásamt Víði Reynissyni, yfirlögregluþjóni hjá Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert