Björgunarsveit kölluð út vegna göngumanns

Björgunarsveitin var kölluð út frá Dalvík.
Björgunarsveitin var kölluð út frá Dalvík. Ljósmynd/Haukur Snorrason

Björgunarsveitin á Dalvík var kölluð út um klukkan fjögur í dag vegna göngumanns í Karlsárdal sem slasast hafði á fæti.

Greiðlega gekk að komast að viðkomandi og var hann fluttur af björgunarmönnum í sjúkrabíl og kominn þangað rúmlega fimm.

Fór hann með sjúkrabílnum á sjúkrahús til nánari skoðunar en meiðsli hans voru við fyrstu sýn ekki talin alvarleg, að því er fram kemur í tilkynningu frá Landsbjörg.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert