Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til upplýsingafundar fyrir fjölmiðla klukkan 14:00 í dag.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og Alma D. Möller landlæknir fara yfir stöðu mála varðandi framgang COVID-19-faraldursins hér á landi ásamt Víði Reynissyni, yfirlögregluþjóni hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.