Erill en allt fór vel

Siglufjörður.
Siglufjörður. mbl.is/Sigurður Bogi

Talsverður erill var hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra í nótt en mun minni á Akureyri en aðfaranótt sunnudags. Á Siglufirði var eitthvað um útköll vegna hávaða, ölvunar og ryskinga en allt leystist þetta vel að sögn varðstjóra.

Einn gistir fangageymslur lögreglunnar á Akureyri og er það vegna ástands. Eitthvað var um útköll vegna hávaða og ölvunar þar í nótt en mun minna en nóttina á undan. 

Lögreglan á Norðurlandi eystra verður við eftirlit á þjóðvegum umdæmisins í dag líkt og lögregla í öðrum umdæmum landsins enda yfirleitt mikill umferðarþungi á frídegi verslunarmanna þegar ferðalangar halda til síns heima eftir ferðalög helgarinnar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert