Halldóra og Ingi skipuð héraðsdómarar

Halldóra Þorsteinsdóttir og Ingi Tryggvason hafa verið skipuð héraðsdómarar.
Halldóra Þorsteinsdóttir og Ingi Tryggvason hafa verið skipuð héraðsdómarar. Ljósmyndir/Dómsmálaráðuneytið

Dómsmálaráðherra hefur skipað Halldóru Þorsteinsdóttur lektor í embætti dómara með fasta starfsstöð við Héraðsdóm Reykjaness frá 1. ágúst 2020. Ingi Tryggvason lögmaður hefur jafnframt verið skipaður í embætti dómara við sama dómstól frá 31. ágúst 2020. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu.

Halldóra Þorsteinsdóttir lauk lagaprófi frá Háskóla Íslands árið 2010 og hefur síðan þá m.a. starfað sem aðstoðarmaður dómara við Hæstarétt Íslands á árunum 2014-2017 og sem lektor við lagadeild Háskólans Reykjavík frá 2017. Þá hefur hún gegnt starfi formanns áfrýjunarnefndar neytendamála og ritað fræðigreinar á ýmsum sviðum lögfræðinnar.

Ingi Tryggvason lauk lagaprófi frá Háskóla Íslands árið 1989 og hefur m.a. starfað sem fulltrúi við Héraðsdóm Vesturlands 1994-1998 og á því tímabili verið í nokkur skipti settur héraðsdómari. Frá árinu 1999 hefur hann rekið eigin lögmannsstofu og fasteignasölu og samhliða því sinnt ýmsum stjórnsýslustörfum.

Fjórtán sóttu um stöðuna sem Ingi var skipaður í, en sömu fjórtán, auk Öldu Hrannar Jóhannsdóttur, yfirlögfræðings hjá lögreglustjóranum á Suðurnesjum, sóttu um stöðuna sem Halldóra var skipuð í.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert