Yfir 30 m/s í hviðum

Kort/Veðurstofa Íslands

Gul viðvörun tekur gildi á Suðausturlandi á miðnætti og gildir til klukkan 10 í fyrramálið, miðvikudag. Spáð er norðaustan 18-23 m/s við ströndina vestan Öræfa með hviðum yfir 30 m/s aðra nótt. Viðbúið er að akstursskilyrði spillist, einkum fyrir ökutæki sem viðkvæm eru fyrir vindi eða draga vagna, að því er segir í aðvörun frá Veðurstofu Íslands.

„Í dag er spáð fremur hægum vindi og vætu í flestum landshlutum. Líkur eru á súld og þokumóðu fram eftir degi, einkum norðvestanlands. Hiti verður á bilinu 8 til 15 stig og má reikna með að hlýjast verði á Norðausturlandi.

Í kvöld kemur lægð upp að landinu úr suðri og fer að hvessa suðaustanlands. Þar er spáð stormi í nótt, vestan Öræfa, með talsverðri rigningu. Á morgun er útlit fyrir áframhaldandi austanátt með vætu víðast hvar, einkum um austanvert landið, en snýst í sunnanátt um kvöldið og dregur úr úrkomu.

Seinna í vikunni er meinlaust veður í kortunum: Fremur hægur vindur og rigning með köflum, en stefnir í hlýnandi veður og bjart um norðaustanvert landið um helgina,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.

Veðurspáin fyrir næstu daga

Breytileg átt 3-8 m/s, skýjað og dálítil væta í flestum landshlutum. Víða súld eða þokumóða fram eftir morgninum. Austlæg átt um landið austanvert seint í dag. Fer að rigna sunnan og vestan til í kvöld en hvessir með suðausturströndinni, NA 13-18 þar seint í kvöld. Hiti 8 til 15 stig, hlýjast norðaustanlands.

Á miðvikudag:
Austlæg átt 5-13 m/s með rigningu víðast hvar, en 13-18 m/s suðaustanlands um morguninn, og talsverð úrkoma fram eftir degi þar. Snýst í hægari suðlæga átt síðdegis, en hvessir af norðaustri á Vestfjörðum. Hiti 8 til 13 stig.

Á fimmtudag:
Suðlæg átt 3-10 m/s. Rigning og hiti 8 til 12 stig, en þurrt og bjart norðaustanlands með hita á bilinu 10 til 16 stig.

Á föstudag:
Fremur hæg norðlæg eða breytileg átt, en heldur hvassari suðaustanátt við suðausturströndina. Rigning austan til, annars bjart með köflum og þurrt að mestu. Hiti 8 til 14 stig að deginum.

Á laugardag:
Sunnan og suðvestan 5-13 m/s. Rigning um vestanvert landið, annars skýjað með köflum og þurrt. Fremur milt í veðri, einkum á Austurlandi.

Á sunnudag og mánudag:
Útlit fyrir sunnanátt með rigningu sunnan og vestan til, annars þurrt og bjart með köflum. Hlýnandi veður á Norðausturlandi, annars lítil breyting í hita.

Veður á mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert