Grímur komi í veg fyrir smit

Rannsóknir hafa sýnt að andlitsgrímur komi í veg fyrir að fólki smiti og/eða smitist af COVID-19 vegna þess að sýkingar af veirunni SARS-CoV-2 dreifist fyrst og fremst með dropa- eða snertismiti.

Þetta kemur fram í svari við spurningu á Vísindavefnum þar sem spurt er hvort rannsóknir hafi sýnt að andlitsgrímur komi í veg fyrir að fólk smitist af COVID-19. Það er Jón Magnús Jóhannesson, deildarlæknir á Landspítalnum, sem svarar.

Þegar við hóstum, hnerrum og tölum berst aragrúi örsmárra dropa frá öndunarfærunum. Ef einstaklingur er sýktur af SARS-CoV-2 eru þessir dropar gjarnan hlaðnir veirum. Droparnir berast síðan mislangt áfram og geta lent í munni annarra, höndum eða á yfirborði hluta í næsta nágrenni. Stærð dropa og hversu langt þeir ferðast er ýmsu háð. Til dæmis þeytast fleiri dropar og lengra þegar við hnerrum og hóstum en þegar við tölum,“ segir í svarinu á Vísindavefnum.

Grímur grípi yfirgnæfandi meirihluta dropa frá öndunarfærum og varni því að þeir berist lengra. Það þýðir að grímur geta bæði stöðvað dropa sem við gefum frá okkur og dropa sem berist til okkar frá vitum annarra.

Enn fremur segir að ýmsar ástæður séu fyrir því hvers vegna fólki er þá ekki alltaf ráðlagt að vera með grímu nú þegar kórónuveirufaraldurinn geisar. Nota þurfi grímur á réttan hátt til að árangur náist:

  • Hendur þurfa að vera hreinar áður en gríma er sett á.
  • Gríman þarf að hylja nef og munn.
  • Ekki má snerta sjálfa grímuna eftir að hún er komin á.
  • Ekki ætti að taka grímuna niður nema næsti einstaklingur sé í minnst tveggja metra fjarlægð.
  • Aðeins á að snerta böndin þegar gríma er tekin niður, henni skal fleygja á öruggan hátt og hendur þvegnar að því loknu.
  • Ef nota þarf grímu í langan tíma á að skipta reglulega til að koma í veg fyrir rakamettun (á sérstaklega við um einnota grímur).
  • Fjölnota grímur þarf að þvo daglega (aðferð fer eftir gerð grímu).

Nýjar ráðleggingar um notkun gríma í samfélaginu miða við að þær séu notaðar þar sem hætta er á smiti, einkum þar sem tímabundið þarf að víkja frá tveggja metra reglunni, segir í svarinu sem má lesa hér.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert