Félagsmenn í Félagi leikskólakennara, Félagi stjórnenda leikskóla og Skólastjórafélagi Íslands hafa samþykkt nýja kjarasamninga. Atkvæðagreiðslu um samningana þrjá lauk klukkan 11 í dag, en félögin þrjú skrifuðu undir kjarasamninga við Samband íslenskra sveitarfélaga þann 10. júlí.
Samningarnir voru síðan kynntir félagsmönnum og bornir undir atkvæði en kosning hófst á þriðjudag. Greint er frá þessu á vef Kennarasambands Íslands.
Úrslitin voru svohljóðandi:
Félag leikskólakennara
Félag stjórnenda leikskóla
Skólastjórafélag Íslands
Gildistími samninganna þriggja er frá 1. janúar 2020 til 31. desember 2021.
Enn er ósamið við Félag grunnskólakennara og Félag kennara og stjórnenda í tónlistarskólum. Viðræðuáætlun var endurnýjuð í liðnum mánuði og eru í viðræður í gangi.