Leikskólakennarar og skólastjórar samþykkja samninga

Leikskólastjórnendur og -kennarar samþykktu samninga. Atkvæðagreiðslu lauk klukkan 11.
Leikskólastjórnendur og -kennarar samþykktu samninga. Atkvæðagreiðslu lauk klukkan 11. mbl.is/Eggert

Félagsmenn í Félagi leikskólakennara, Félagi stjórnenda leikskóla og Skólastjórafélagi Íslands hafa samþykkt nýja kjarasamninga. Atkvæðagreiðslu um samningana þrjá lauk klukkan 11 í dag, en félögin þrjú skrifuðu undir kjarasamninga við Samband íslenskra sveitarfélaga þann 10. júlí.

Samningarnir voru síðan kynntir félagsmönnum og bornir undir atkvæði en kosning hófst á þriðjudag. Greint er frá þessu á vef Kennarasambands Íslands.

Úrslitin voru svohljóðandi: 

Félag leikskólakennara

  • Á kjörskrá voru 1.764
  • Atkvæði greiddu 1.236 eða 70,07%
  • Já sögðu 1.008 eða 81,55%
  • Nei sögðu 204 eða 16,51%
  • Auðir 24 eða 1,94%

Félag stjórnenda leikskóla

  • Á kjörskrá voru 417
  • Atkvæði greiddu 319 eða 76,5%
  • Já sögðu 280 eða 87,77%
  • Nei sögðu 36 eða 11,2%
  • Auðir 3 eða 0,94%

Skólastjórafélag Íslands

  • Á kjörskrá voru 656
  • Atkvæði greiddu 507 eða 77,29%
  • Já sögðu 473 eða 93,29%
  • Nei sögðu 31 eða 6,12%
  • Auðir 3 eða 0,59%

Gildistími samninganna þriggja er frá 1. janúar 2020 til 31. desember 2021.

Enn er ósamið við Félag grunnskólakennara og Félag kennara og stjórnenda í tónlistarskólum. Viðræðuáætlun var endurnýjuð í liðnum mánuði og eru í viðræður í gangi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert