Lögreglumaður smitaður og 13 í sóttkví

Lögreglumaður hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu hefur verið greindur með kórónuveiruna. Ekki er talið að hann hafi smitast við störf sín hjá embættinu, að því er fram kemur í tilkynningu.

Gripið var til allra viðeigandi ráðstafana strax og málið kom upp í gær og voru þrettán aðrir lögreglumenn sendir í sóttkví vegna þessa, en að auki eru fimm lögreglumenn til viðbótar í úrvinnslusóttkví.

Unnið er að því að tryggja mönnun á vaktir vegna þeirrar stöðu sem upp er komin og miðar þeirri vinnu vel.

Embættinu var skipt upp í sótthólf frá og með hádegi sl. föstudag, 31. júlí, og því hefur ofangreint áhrif á eina lögreglustöð í umdæminu, en ekki allar fjórar.

Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert