Jarðskjálfti af stærð 4,6 fyrir norðan

Skjáskot/Veðurstofa Íslands

Klukkan 03:42 í nótt varð jarðskjálfti af stærðinni 4,6 um 11 kílómetra norðvestur af Gjögurtá. Tíu mínútum síðar, klukkan 03:52, varð annar skjálfti af stærðinni 3,7 á svipuðum slóðum. Tilkynningar hafa borist um að skjálftarnir hafi fundist víða á Tröllaskaga og í Eyjafirði. Rúmlega 40 smáskjálftar hafa fylgt í kjölfarið.

Þetta er stærsti skjálfti á svæðinu frá 19. júlí, en þá varð skjálfti af stærðinni 4,4. Skjálftavirkni hefur verið viðvarandi á þessu svæði frá því í júní og eru þessi skjálftar hluti af þeirri virkni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert