Tveir smitaðir í Eyjum og 79 í sóttkví

mbl.is/Sigurður Bogi

Tveir einstaklingar eru nú í einangrun smitaðir af kórónuveirunni í Vestmannaeyjum og 79 í sóttkví. Einn einstaklingur hefur lokið sóttkví. Þetta kemur fram í tilkynningu frá aðgerðastjórn Vestmannaeyja.

Í gær fór fram skimun á vegum Heilbrigðisstofnunar Suðurlands í Vestmannaeyjum meðal einstaklinga í sóttkví og var hún vel sótt. Á morgun fer fram skimun á vegum Íslenskrar erfðagreiningar til að kanna útbreiðslu veirunnar í Vestmannaeyjum.

Einn greindist smitaður af kórónuveirunni í Eyjum í gær. Degi áður var greint frá því að einstaklingar sem voru gestkomandi í Vestmannaeyjum um verslunarmannahelgina hefðu greinst smitaðir. 

Aðgerðastjórnin hvetur þá sem hafa skráð sig til að mæta og ítrekar mikilvægi þess að bæjarbúar gæti vel að eigin smitvörnum og sæki C-19-smitrakningarapp almannavarna.

Aðilum með flensueinkenni er bent á að hafa samband við læknavaktina í síma 1700 og fá tíma í sýnatöku.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert