Árekstur á Reykjanesbraut

Frá gatnamótum Reykjanesbrautar og Bústaðavegar. Mynd úr safni.
Frá gatnamótum Reykjanesbrautar og Bústaðavegar. Mynd úr safni. mbl.is/Brynjar Gauti

Þrír sjúkrabílar og dælubíll slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins voru kallaðir út þegar tveir bílar lentu saman á Reykjanesbraut til móts við Sprengisand laust eftir klukkan fimm.

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu virðast ekki hafa orðið slys á fólki.

Vegfarendur mega búast við einhverjum töfum vegna vinnu á slysstað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert