Söfnun lífræns úrgangs hefst í Grafarvogi

Við öll hús í Hamrahverfi bætast við brún 140 lítra …
Við öll hús í Hamrahverfi bætast við brún 140 lítra sorpílát í haust, en stærð þeirra er sambærileg við spartunnu. Ljósmynd/Reykjavíkurborg

Reykjavíkurborg hefur hafið undirbúning á sérsöfnun á lífrænum eldhúsúrgangi í Hamrahverfi í Grafarvogi, en verkefnið er hluti af aðgerðaáætlun um sérsöfnun á lífrænum eldhúsúrgangi og endurvinnslu á honum.

Við öll hús í Hamrahverfi bætast við brún 140 lítra sorpílát í haust, en stærð þeirra er sambærileg við spartunnu, auk þess sem litlu söfnunaríláti til að nota í eldhúsi verður dreift til allra heimila, ásamt maíspokum til að nota fyrstu vikurnar. Fyrirhugað er að byrjað verði að safna úrgangi úr brúnum tunnum fyrir lok september.

Áætlun um áframhaldandi tilraunaverkefni á sérsöfnun lífræns eldhúsúrgangs í Hamrahverfi var samþykkt á fundi umhverfis- og heilbrigðisráðs 27. maí síðastliðinn, en í viðhorfskönnun frá 2018 töldu 78% íbúa Reykjavíkur mjög líklegt eða líklegt þeir myndu nýta sér tunnu undir lífrænan úrgang við heimili.

Þegar farið er að flokka frá lífrænan eldhúsúrgang til viðbótar við aðra flokkun má gera ráð fyrir að efnið sem fer í grátunnuna geti minnkað. Þá getur skapast tækifæri til að skipta út hefðbundinni grátunnu fyrir spartunnu og þannig draga úr kostnaði heimilisins vegna sorphirðu, að því er fram kemur í tilkynningu á vef Reykjavíkurborgar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert