Óskað var eftir aðstoð lögreglu um klukkan 20 í gærkvöldi vegna þriggja 7 ára drengja sem höfðu farið í Öskjuhlíð að leika sér með talstöðvar en ekki skilað sér aftur.
Drengirnir sáust síðast rúmum 4 klukkustundum áður og voru foreldrar, ættingjar og vinir farnir að leita. Einnig var búið að auglýsa eftir þeim á Facebook.
Drengirnir fundust svo hálftíma síðar við Klambratún og amaði ekkert að þeim. Þrettán lögreglumenn á 7 ökutækjum tóku þátt í leitinni auk fjölmargra vina og ættingja drengjanna. Til stóð að óska eftir aðstoð björgunarsveita þegar drengirnir fundust.