Aðstæður með öllu óviðunandi

mbl/Arnþór

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fór á 13 veitingastaði í gær til að kanna með ráðstafanir varðandi sóttvarnir og tveggja metra reglu. Sjö staðir þurfa að gera úrbætur og á einum stað voru aðstæður með öllu óviðunandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

„Alls voru fjórir staðir með sín mál í mjög góðu ástandi, þar af tveir veitingastaðir til mikillar fyrirmyndar. Þessir staðir voru hvattir til að halda uppteknum hætti.

Alls þurftu sjö staðir að gera úrbætur og bæta skipulagið fyrir aukna aðsókn á staðina. Líkt og fyrri daginn voru fáir inni á þessum stöðum þegar lögregla leit við. Starfsmönnum þessara staða voru veittar ráðleggingar um hvernig mætti gera betur.

Einn staður hafði ekki gert viðunandi ráðstafanir til að tryggja sóttvarnir og tveggja metra reglu á tilteknu svæði, en þar var tveggja metra regla alls ekki virt. Ráðstafanir voru gerðar tafarlaust. Skrifuð verður skýrsla á brotið.

Á einum stað voru aðstæður með öllu óviðunandi. Of margir voru inni á staðnum, miðað við stærð hans og skort á sóttvarnarskipulagi, og alls ekki tveggja metra bil milli gesta. Grípa þurfti til þess ráðs að loka staðnum tímabundið og vísa gestum út af staðnum. Skýrsla verður sömuleiðis rituð á brotið,“ segir í tilkynningu frá lögreglunni. 

Tveggja metra reglan útskýrð af lögreglumönnum í miðborginni. Myndin er …
Tveggja metra reglan útskýrð af lögreglumönnum í miðborginni. Myndin er úr safni. Ljósmynd/Lögreglan
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert