Sjötíu þúsund skammtar bóluefnis gegn inflúensu eru væntanlegir til landsins í september og er það svipað magn og verið hefur undanfarin ár.
Líklegt er að aukin þörf og eftirspurn verði eftir bóluefninu vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar og hafa íslensk yfirvöld óskað eftir meira bóluefni. Það gæti þó reynst erfitt þar sem aðrar þjóðir eru í svipuðum hugleiðingum.
Þetta sagði Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir á upplýsingafundi almannavarna.
Að öðru leyti sagði hann ekki nauðsynlegt að breyta nálgun varðandi árlegan inflúensufaraldur, þó að hugsanlegt er að hann muni auka álagið á heilbrigðiskerfið enn frekar þar sem mörg einkennanna svipi til kórónuveirusýkingar.
Undir 1% sýna úr einstaklingum með einkenni hafa reynst jákvæð fyrir kórónuveirunni nú í seinni bylgju kórónuveirufaraldursins sem Þórólfur segja benda til þess að fleiri pestir séu að ganga.
Inflúensan gerir venjulega vart við sig upp úr áramótum og segir Þórólfur að sjá þurfi til hvernig staðan yrði á kórónuveirufaraldrinum þá og að lykilatriði væri að vera dugleg að greina.