Vilja fá svipaða undanþágu og íþróttafólk

SAVÍST hvetur stjórnvöld til að leita leiða til að starfsemi …
SAVÍST hvetur stjórnvöld til að leita leiða til að starfsemi lista- og menningarstofnana geti farið af stað á nýjan leik í þrepum á næstu vikum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Samtök atvinnuveitenda í sviðslistum og tónlist (SAVÍST) hvetur stjórnvöld til að leita leiða til að starfsemi lista- og menningarstofnana geti farið af stað á nýjan leik í þrepum á næstu vikum.

Í ályktun frá SAVÍST er lagt til að skoðað verði hvort unnt sé að nálgast menningarstarfsemi með sama hætti og gert hefur verið með íþróttahreyfinguna, þ.e. að heimila að listamenn geti hafið störf á sviði á svipaðan hátt og íþróttamönnum hefur verið gert kleift að hefja iðkun á íþróttavelli.

Viljum við leita allra leiða til að geta hafið störf sem fyrst innan stofnananna, en þó alltaf í samræmi við tilmæli og skilyrði yfirvalda. Að sjálfsögðu vilja menningarstofnanir geta tekið á móti gestum eins fljótt og auðið er en mikilvægast er þó að æfingar og annar undirbúningur viðburða geti hafist hið fyrsta og farið fram með eins eðlilegum hætti og unnt er,“ segir í ályktuninni.

Bent er á að þar mætti horfa til þeirra tilslakana sem gerðar hafa verið fyrir ákveðna þætti atvinnulífsins, íþróttahreyfinguna og skóla.

Það er okkur kappsmál að standa vörð um menningu og listir, þann breiða hóp sem atvinnu hefur af listgreinum og alla landsmenn sem sækja andlega næringu í þann brunn. Heill okkar og hamingja er í húfi,“ segir enn fremur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert