Sex ný innanlandssmit

Landspítali/Þorkell Þorkelsson

Sex kór­ónu­veiru­smit greind­ust á sýkla- og veiru­fræðideild Land­spít­al­ans í gær en ekk­ert hjá Íslenskri erfðagrein­ingu. Fjögur smit greindust við landamærin en beðið er eftir mótefnamælingu hjá öllum.

Alls eru 120 í ein­angr­un, einn á sjúkra­húsi og einn á gjör­gæslu. 

Þetta kemur fram á covid.is.

Tals­vert fækk­ar í sótt­kví á milli daga en nú eru 720 í sótt­kví. 

695 sýni voru tek­in hjá sýkla- og veiru­fræðideild Land­spít­al­ans, 27 hjá Íslenskri erfðagrein­ingu og 2.488 við landa­mær­in.

 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert