Umferðin í bláum geisla

Glíman við þjóðveginn er stór þáttur í starfinu. Birgir Rúnar …
Glíman við þjóðveginn er stór þáttur í starfinu. Birgir Rúnar Steinarsson Busk hér á Sandskeiði. mbl.is/Sigurður Bogi

Rigningarkvöld í ágúst. Þung umferð á Suðurlandsvegi og bílar á ferð bæði austur fyrir fjall og til Reykjavíkur. Margir bílstjórar aka greitt en slá af þegar þeir sjá bláu ljósin á lögreglubílnum. Geisli þeirra er skerandi og er sterk viðvörun. Þetta er við Litlu kaffistofuna á Sandskeiði; lögreglumenn frá Selfossi eru í umferðareftirliti og eru hér við vesturmörk víðfeðms varðsvæðis.

Læri mest af reynslu

„Umferðareftirlit er stór þáttur í starfi okkar, þótt verkefni séu annars fjölbreytt,“ segir Birgir Rúnar Steinarsson Busk lögreglumaður. Hann er úr Hveragerði og kom til starfa hjá lögreglunni á Suðurlandi í vor eftir að hafa stundað nám við Háskólann á Akureyri ásamt starfsnámi hjá ríkislögreglustjóra.

„Núna er ég búinn með annan af tveimur vetrum í skólanum sem þarf til að öðlast starfsréttindi. Þar er margt tekið fyrir, en mest lærir maður auðvitað í starfinu úti á vettvangi og á meðal fólks,“ segir Birgir Rúnar sem kveðst hafa fundið sína fjöl í starfinu. Við sitjum í lögreglubílnum og viðmælandinn lýsir starfi sínu sem hann segir afar fjölbreytt.

„Vissulega hef ég með félögum mínum þurft að ganga inn í ýmsar erfiðar aðstæður og hafa afskipti af fólki á þess verstu stundu. Þar gildir að fara vel að fólki vitandi að með samtali má yfirleitt ná tökum á ástandi. Ég er svo heppinn að hafa ekki enn þurft að beita afgerandi valdi gagnvart fólki. Að vera hjá fólki sem hefur misst ástvini sína kannski skyndilega er sömuleiðis mjög krefjandi. Þar gildir fyrst og fremst að vera til staðar; fólki til halds og trausts. Þetta eru verkefni sem taka á og er mikilvægt fyrir lögreglumenn að vinna vel úr þeim svo þau valdi ekki sálrænum vanda síðar.“ Þá segir Birgir Rúnar margvíslega gát nú viðhafða í lögreglustörfunum vegna smithættu. Alls 14 úr lögregluliðinu á Suðurlandi hafi þurft í sóttkví á dögunum og þar af hafi þrír verið smitaðir, en komnir til starfa aftur nú. Þessari reynslu sé lærdómur dreginn af.

Umferðin streymir áfram

En aftur að umferðinni. Hraðinn er oft orsök slysa og því er forgangsmál lögreglu að halda honum niðri með virku eftirliti. „Auðvitað er ansi hart þegar ungir ökumenn, nýkomnir með bílpróf, eru með glannaskap. Tiltal við þessa krakka er nauðsynlegt og stundum betra og áhrifaríkara en háar sekir. Slíkt samtal verður oft til þess að krakkarnir koma ekki oftar inn á radarinn hjá okkur og til þess er leikurinn líka gerður,“ segir Birgir Rúnar að síðustu. Umferðin steymir áfram og bláu ljósin blikka. Lögreglumennirnir halda aftur austur á bóginn og hafa vökult auga með öllu því sem fyrir ber.

Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu 11. ágúst. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert