Bílvelta á Möðrudalsöræfum

Lögreglan á Vopnafirði mætti á vettvang.
Lögreglan á Vopnafirði mætti á vettvang. mbl.is/Eggert

Bíll með aftanívagn fauk út af veginum á Möðrudalsöræfum fyrr í dag. Þetta staðfestir lögreglan á Egilsstöðum í samtali við mbl.is.  

RÚV greindi fyrst frá.

Engin slys urðu á fólki, en það var lögreglan á Vopnafirði sem mætti á vettvang. Skemmdir urðu á aftanívagninum og bíllinn endaði á hvolfi. Samkvæmt Veðurstofu er nokkurt hvassviðri á svæðinu og gul viðvörun gildir víða um land, meðal annars á Norðurlandi eystra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert