Eitt kórónuveirusmit greindist á sýkla- og veirufræðideild Landspítalans í gær en ekkert hjá Íslenskri erfðagreiningu. Átta smit greindust við landamærin en beðið er eftir mótefnamælingu hjá öllum.
Alls eru 112 í einangrun, einn á sjúkrahúsi en enginn á gjörgæslu.
Þetta kemur fram á covid.is en 720 eru í sóttkví.
Öll fjögur smitin við landamærin sem greindust í fyrradag voru virk.
315 sýni voru tekin hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans, 13 hjá Íslenskri erfðagreiningu og 2.473 við landamærin.