Sluppu með skrekkinn í Eyvindará

Tíðkast hefur að fólk stökkvi í ána á góðviðrisdögum.
Tíðkast hefur að fólk stökkvi í ána á góðviðrisdögum. Ljósmynd/Benedikt Warén

Tvær stúlkur lentu í óhappi við Eyvindará á Egilsstöðum stuttu eftir klukkan 17 á föstudag. Lögreglan á Austurlandi greinir frá þessu.

Stúlkurnar, 11 og 12 ára, ásamt fjölda annarra, höfðu verið að stökkva í ána þegar þær bárust með straumi niður að flúð sem er neðar í ánni. Þar lentu þær í sjálfheldu og þurftu foreldrar þeirra, ásamt nokkrum sem voru viðstaddir, að bjarga þeim upp úr ánni.

Stúlkurnar sluppu með skrekkinn og fóru heim til sín eftir skoðun hjá lækni, að því er lögreglan á Austurlandi greinir frá.

Leiti áfallahjálpar á næstu heilsugæslustöð

Tíðkast hefur að fólk stökkvi í ána á góðviðrisdögum, en lögreglan bendir á að sterkur straumur sé í Eyvindará og að hún geti verið varasöm. Mikið afrennsli sé úr fjöllum á Austurlandi vegna hlýinda undanfarið og áin því vatnsmikil um þessar mundir.

Lögreglan beinir því einnig til þeirra sem urðu vitni að atvikinu, að hafa samband við næstu heilsugæslustöð ef viðkomandi telji sig þurfa á áfallahjálp að halda.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert