Grunuð um líkamsárás á veitingahúsi

Lögreglan að störfum.
Lögreglan að störfum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Kona var handtekin á veitingahúsi í miðborg Reykjavíkur um hálftólfleytið í gærkvöldið grunuð um líkamsárás.

Hún var vistuð í fangageymslu lögreglunnar.

Bifreið var stöðvuð í hverfi 220 í Hafnarfirði laust fyrir klukkan sex í gærkvöldi. Ökumaðurinn reyndi að komast undan lögreglu en hann er grunaður um ölvun við akstur, ökuhraði hans ekki miðaður við aðstæður og fleiri umferðarlagabrot.

Neitaði að greiða fyrir aksturinn 

Afskipti voru höfð af manni í hverfi 111 í Breiðholti, vegna greiðslusvika skömmu fyrir miðnætti.  Maðurinn hafði tekið leigubifreið úr Hafnarfirði og neitaði síðan að greiða fyrir aksturinn.

Maður var handtekinn í hverfi 108 um eittleytið. Hann hunsaði ítrekað fyrirmæli lögreglu þegar honum var að ósk húsráðanda vísað úr húsi þar sem hann var gestkomandi. Maðurinn var vistaður í fangageymslu lögreglu, að því er kemur fram í dagbók lögreglunnar.

Braut sér leið í gegnum hurðina

Um hálftvöleytið í nótt var tilkynnt um eignaspjöll í Hraunbæ. Maður vaknaði og sá að einhver hafði brotið sér leið í gegnum hurð hans.

Afskipti voru höfð af konu grunaða um þjófnað í verslunarmiðstöð í hverfi 103 um hálfsexleytið í gær. Lögreglan fann ætluð fíkniefni hjá konunni.

Skömmu síðar við tilkynnt um þjófnað í fyrirtæki í hverfi 108. Stolið var veski/tösku frá starfsmanni og er málið í rannsókn.

Tilkynnt var um umferðaróhapp á Höfðabakka um hálftíuleytið í gærkvöldi. Tjónvaldur er grunaður um akstur bifreiðar undir áhrifum fíkniefna

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert