Útkall vegna alelda bíls

Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu barst útkall vegna alelda bíls við Brekknaás. 

Að sögn varðstjóra er slökkvilið á leiðinni á vettvang.

Uppfært kl. 11.38:

Greiðlega gekk að slökkva eldinn. Um var að ræða fólksbíl og er hann ónýtur, að sögn varðstjóra.

Bíllinn var staðsettur á reiðstíg við Brekknaás í Árbænum.

Ekki er ljóst hvernig kviknaði í bílnum en mögulegt er að lekið hafi af honum bensín og kviknað þannig í.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert