Icelandair hefur aflýst fjórum brottförum frá Keflavíkurflugvelli í dag en á miðnætti tóku gildi hertar sóttvarnareglur á landamærum Íslands.
Dönsk stjórnvöld hafa vegna nýju reglnanna sett Ísland á lista yfir lönd sem mælt er gegn ferðalögum til.
Alls fara 16 flugferðir frá Keflavíkurflugvelli í dag og 19 á morgun. Einu flugi hefur verið aflýst á morgun, flugi Icelandair til Kaupmannahafnar í fyrramálið. Í dag aflýsti Icelandair flugi til Parísar, Brussel, Kaupmannahafnar og London.
Farþegar sem koma til Íslands frá og með 19. ágúst geta valið á milli þess að fara í tvær sýnatökur vegna COVID-19 með 5 daga sóttkví á milli þar til niðurstaða seinni sýnatöku liggur fyrir, eða sleppa sýnatöku og sitja í 14 daga sóttkví frá komunni til landsins. Reglugerð heilbrigðisráðherra þessa efnis tók gildi á miðnætti.
Krafa um skimun og sóttkví nær til þeirra sem hafa dvalið í meira en sólarhring síðastliðna 14 daga í löndum sem skilgreind eru af sóttvarnalækni sem áhættusvæði en sem stendur gildir það um öll lönd. Börn fædd árið 2005 eða síðar eru undanþegin sýnatöku og sóttkví og sama gildir um þá sem íslensk heilbrigðisyfirvöld hafa staðfest með PCR-prófi að hafi áður fengið COVID-19-sýkingu og lokið einangrun, eða ef COVID-19-sýking hefur verið staðfest með mótefnamælingu. Tengifarþegar sem fara ekki út fyrir viðkomandi landamærastöð þurfa hvorki að fara í sóttkví né sýnatöku.
Fyrir komuna til Íslands er einstaklingum skylt að forskrá sig með því að fylla út rafrænt eyðublað þar sem meðal annars koma fram samskiptaupplýsingar, upplýsingar um hvar viðkomandi hefur dvalið, hvar hann hyggst dvelja í sóttkví á Íslandi og upplýsingar um heilsufar. Þeim sem flytja farþega til Íslands er skylt að vekja athygli viðkomandi á skyldu til forskráningar með hæfilegum fyrirvara.
Ákveðið var að halda áfram að bjóða fólki val um 14 daga sóttkví í stað skimunar en bregðast við tillögu sóttvarnalæknis hvað það varðar, með auknu eftirliti til að tryggja að þeir sem velji þennan kost fari að reglum. Enn fremur er til skoðunar að hækka sektarfjárhæðir við brotum á sóttvarnalögum og reglum settum samkvæmt þeim.
Einstaklingur í sóttkví;
Gjald fyrir sýnatöku á landamærum verður óbreytt frá því sem verið hefur, þ.e. 9.000 kr. hafi viðkomandi greitt gjaldið við forskráningu fyrir komuna til landsins en 11.000 kr. ef greitt er á landamærum. Seinni sýnatakan er gjaldfrjáls.
Líkt og verið hefur getur sóttvarnalæknir heimilað einstaklingum, einum eða fleiri saman, sem skylt er að fara í sóttkví og eru komnir hingað til lands til starfa eða til að sinna sérstökum verkefnum að fara í vinnusóttkví í stað heimasóttkvíar. Með vinnusóttkví er átt við að viðkomandi geti farið til og frá vinnustað á meðan sóttkví stendur. Ákvæði um fyrirkomulag vinnusóttkvíar eru óbreytt.