Skorar á stjórnvöld að endurskoða landamæraskimun

Bæjarstjóri Reykjanesbæjar hefur áhyggjur af atvinnumálum í bænum vegna aðgerða …
Bæjarstjóri Reykjanesbæjar hefur áhyggjur af atvinnumálum í bænum vegna aðgerða stjórnvalda á landamærum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, lýsir því yfir í færslu á Facebook-síðu sinni í dag, að hann telji að stjórnvöld hafi ekki haft hagsmuni Suðurnesjabúa nægilega í huga við ákvarðanatöku um aðgerðir á landamærum.

Fækkun ferðamanna sem fara um Keflavíkurflugvöll þýði að aftur sé útlit fyrir hópuppsagnir í Leifsstöð.

Hann segir að margir þeirra sem sagt hafi verið upp í upphafi kórónuveirufaraldursins sjái nú fram á að vera sagt upp að nýju.

Nú eru áhrif nýrra reglna, sem skylda alla farþega sem koma til landsins í 2 skimanir og 5 daga sóttkví, farnar að koma...

Posted by Kjartan Már Kjartansson on Föstudagur, 21. ágúst 2020
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert