Engu barni sagt upp vegna fjáhagsvanda foreldra

mbl.is/Kristinn Magnússon

Engum börnum hefur verið sagt upp leikskólaþjónustu vegna fjárhagsvanda foreldra í Reykjavík. Þetta kemur fram á vef Reykjavíkurborgar en í síðustu viku sendi umboðsmaður barna fyrirspurn um málið til skrifstofu borgarstjóra.

Um þessar mundir njóta ríflega 5.200 börn þjónustu í 63 leikskólum borgarinnar. Stefna borgarinnar er að halda gjaldtöku fyrir leikskólaþjónustu í lágmarki og standa vörð um hag barna og fjölskyldna þeirra.

Ekkert barn á að fara á mis við mikilvæga grunnþjónustu eins og leikskólavist vegna fjárhagserfiðleika eða félagslegrar stöðu foreldra eða annarra forráðamanna. Verklagsreglur þess efnis voru samþykktar í borgarstjórn árið 2013, segir á vef Reykjavíkurborgar.

„Á hverju ári skapast þær aðstæður að ekki berast greiðslur frá öllum foreldrum fyrir þá þjónustu sem þeir hafa sótt um fyrir börn sín. Þá fer af stað hefðbundið ferli þar sem vakin er athygli forráðamanna á því að greiðslur séu í vanskilum. Flestir forráðamenn bregðast við með því að greiða skuldina eða semja um hana. Ef ekki er brugðist við er sent bréf um fyrirhugaða uppsögn á leikskólaþjónustu þegar liðnir eru a.m.k. 110 dagar frá gjalddaga reiknings.

Ekkert barn hefur verið svipt leikskólaþjónustu undanfarin misseri þegar foreldrar hafa sótt um aðstoð frá velferðarsviði borgarinnar samkvæmt verklagsreglunum frá 2013. Á fyrstu 6 mánuðum 2020 hafa foreldrar um 200 barna fengið aðstoð vegna greiðslu leikskólagjalda.

Á tímabilinu janúar 2019 til ágúst 2020 hafa 26 börn hætt eftir að forráðamenn þeirra fengu tilkynningu um uppsögn vegna vanskila.

Tíu þeirra hættu þar sem þau voru að hefja grunnskólagöngu, þrjú fluttu frá Reykjavík áður eða um svipað leyti og plássi var sagt upp
Í tilviki 13 barna hafa foreldrar ekki óskað eftir aðkomu velferðarsviðs eða ástæða uppsagnar er óþekkt.

Mikilvægt er að allir foreldrar séu upplýstir um grunnþjónustu borgarinnar og þau úrræði sem eru í boði til að mæta fjárhagslegum erfiðleikum eða félagslegri stöðu. Núverandi verklag verður yfirfarið til að tryggja það,“ segir á vef Reykjavíkurborgar.

Aðgerðaáætlunin Brúum bilið miðar að því að fjölga leikskólarýmum um allt að 750 um alla borg svo hægt verði innan fárra ára að bjóða öllum börnum frá 12 mánaða aldri pláss í leikskóla.

Sjá nánar á vef Reykjavíkurborgar

mbl.is

Stöndum saman

Við hjá Árvakri viljum vekja athygli á því sem vel er gert á þessum erfiðu tímum. Ef þú ert með góða sögu af fyrirtækjum og einstaklingum sem eru að gera gott, sendu okkur ábendingu á netfangið stondumsaman@mbl.is.

Stöndum saman

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert