Hafna hugmyndum um frestun launahækkana

Í ályktuninni segir að kjaraskerðing ógni ekki aðeins „afkomuöryggi launafólks …
Í ályktuninni segir að kjaraskerðing ógni ekki aðeins „afkomuöryggi launafólks á krepputímum heldur hefur hún einnig skaðleg áhrif til frambúðar og mun bæði dýpka og lengja kreppuna. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands hefur hafnað með öllu hugmyndum um frestun launahækkana og skerðingu launa sem settar hafa verið fram af fulltrúum atvinnurekenda og stjórnvalda undanfarið. Miðstjórn ASÍ áréttar einnig mikilvægi þess að stjórnvöld „etji ekki aðilum vinnumarkaðar saman nú þegar endurskoðun kjarasamninga stendur fyrir dyrum“.

Þetta kemur fram í ályktun miðstjórnar ASÍ um kjaramál. 

Í ályktuninni segir að kjaraskerðing ógni ekki aðeins „afkomuöryggi launafólks á krepputímum heldur hefur hún einnig skaðleg áhrif til frambúðar og mun bæði dýpka og lengja kreppuna. Bætt kjör launafólks skila sér bæði í aukinni neyslu, sem er afar áríðandi í samdrætti, og auknu skattfé, enda er launafólk helstu skattgreiðendur landsins.“

Þá segir einnig í ályktuninni að Samtök atvinnulífsins virðist „hvorki hafa skilning á þörfum atvinnulífsins né almennings og kjósa heldur að fylgja hugmyndafræðilegri línu sem getur, ef henni er fylgt, haft í för með sér langvinnan skaða fyrir íslenskt efnahagslíf og samfélag“.

Drífa Snædal, forseti ASÍ.
Drífa Snædal, forseti ASÍ. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert