Þrjú metin hæfust í embætti dómara

Landsréttur.
Landsréttur. mbl.is/Hallur Már

Ástráður Haraldsson, Jón Höskuldsson og Ragnheiður Bragadóttir eru hæfust þeirra sem sóttu um embætti dómara við Landsrétt. Ekki verður gert upp á milli hæfni þeirra þriggja, að sögn dómnefndar.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef dómsmálaráðuneytisins.

Sjö umsóknir bárust um embættið en tveir drógu umsóknir sínar síðar til baka. Sótt var um tvö embætti dómara við Landsrétt, að því er kemur fram í umsögn dómnefndar. 

Dómnefndina skipuðu: Eiríkur Tómasson, formaður, Halldór Halldórsson, Helga Melkorka Óttarsdóttir, Kristín Benediktsdóttir og Óskar Sigurðsson.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert